Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2011

Síðustu dagar... hóst.

Hæ, hæ!!

Vá, ég trúi því ekki hvað það er langt síðan ég bloggaði seinast.. sussu!

En megin ástæða þess er að ég er búin að vera lasin.. með eitthverja fáránlega pest sem gengur í sveiflum... þessi vika var sú versta hingað til, en ég þurfti að fara fyrr heim úr skólanum í gær og ég mætti ekki í fyrirlestra í morgun þar sem ég treysti mér ekki til að hjóla í kuldanum (það var kalt og rakt í morgun). Ég er búin að vera að hósta eins og brjálæðingur í rúma viku....ég held að þetta fari batnandi núna, en ég vona það því ég hef alls ekki tíma til að vera lasin... í næstu viku held ég fyrirlestur og svo þarf ég að skila tveimur stórum skýrslum fyrir október-hlé-ið.

Seinustu helgi fór ég í dýragarðinn hérna í Odense, það var mjög gaman. Ég fór með tveimur stelpum frá Suður-Kóreu og tveimur öðrum stelpum frá Frakklandi. Það fyndna var að ég varð einhverra hluta vegna skipaður leiðsögumaður, en ég var sú eina sem vissi hvernig ætti að fara í dýragarðinn (þrátt fyrir að hafa aldrei farið þangað áður...) og svo leiddi ég hópinn í gegnum dýragarðinn!!!
En ég sá sækýr í fyrsta skipti.. það var áhugavert! Það borgaði sig að vera líffræðinemi, en líffræðinemar við háskólann minn fá ókeypis aðgang :D Dýragarðurinn var bara mjög flottur.

Veðrið er búið að vera æðislegt.. núna er glampandi sól og 20°Chiti... þá er svo týpískt að vera kvefuð!!!

Seinasta mánudag var samkoma í ráðhúsinu þar sem borgarstjórinn í Odense bauð okkur alþjóðlegu stúdentana velkomna. Hann talaði í heilar 2 mínútur og þá var boðið upp á samlokur og fleira. Flestallir mættu bara til að fá ókeypist mat.. heheh (ég þar með talin!).

Seinasta þriðjudag fór ég á ,,Danish movie night" með Erasmus fólkinu. Við horfðum fyrst á Blinkende Lygter (sem ég var reyndar búin að sjá 3var...) og svo fengum við okkur pizzu og töluðum um myndina. Evrópubúarnir (þar með talin ég) hlógum að svarta húmor Dananna... Asíubúarnir fengu hins vegar menningarsjokk! Ég er ekki að grínast, þeim var virkilega brugðið og þau skildu ekkert í neinu. Seinni myndin var svo De grönne slagtere, sem ég var líka búin að sjá áður, og þar sem hún er virkilega ógeðsleg ákvað ég að fara heim (ásamt Asíubúunum haha). Ég varaði fólk við því að hún væri ógeðsleg, og það var mér mjög þakklátt eftir á að hafa fengið þá viðvörun!!!!

Ég ákvað að hætta í dönsku kennslunni og það getur verið að ég fái að taka þátt í talþjálfun með sænsku og norsku fólki. En ég byrja þá eftir hlé-ið í október.

Ég verð ein heima um helgina. En það skiptir litlu máli þar sem að þessi helgi fer mest í lærdóm!!!! Eða ég vona að ég verði dugleg....! Ég er frekar þreytt eftir vikuna, en ég hef sofið mjög lítið vegna hóstakasta á nóttunni seinustu 5 nætur. Ég vona svo innilega að þetta fari fljótlega.. er komin með harðsperrur í augun af því að hósta svona mikið hehehe.

Jæja, ég ætla að drífa mig í Nettó áður en þeir loka.... reyni að vera duglegri að blogga :)
PS. set inn mynd hérna af hjólinu mínu f. áhugasama!!! :)

Eva.


Zzzzzzz....

Halló halló!!

Það er búið að vera mikið að gera... *geisp*!!

Gærdagurinn var laaaaangur! Það voru fyrirlestrar í skólanum frá 10-16 og svo fór ég beint í dönskutíma...
Jébb, ég skráði mig í dönskutíma fyrir lengra komna... þeir er á miðvikudögum frá kl. 17-20:15!!!!
En ég varð fyrir vonbrigðum því það var lögð áhersla á að lesa og skrifa... þannig að mér leiddist frekar mikið mest allan tímann, aðeins of létt... en þegar kom að því að þurfa að lesa upphátt eða tala á dönsku þá voru krakkarnir í hópnum mínum margir betur að vígi en ég!!!! Ég ákvað að hætta, ég græði ekki nógu mikið á þessu því það er svo lítið talað... ætla í staðinn að reyna að finna dönsku-tal-tíma... sé til hvað verður úr því!!

Ég svaf lítið sem ekkert í nótt... var svo heppin að fá þetta hlussubit á ristina! Það bólgnaði upp eins og ég veit ekki hvað og mig klæjar óheyrilega mikið í bitið!!! Eða bitin réttara sagt... :( Annað þeirra er svo stórt að mér er ekkert farið að lítast á þetta...

Annars er eiginlega ekkert að frétta.... ég fékk danska kennitölu í vikunni.....
....ég vaaaar að fara með hjólið mitt í viðgerð (loksins) og fæ það til baka á morgun!

Planið er að fara í dýragarðinn á laugardag og læra..... það er rosalega mikið af verkefnaskilum framundan!!!

Ég er búin að vera með eitthvað leiðindakvef... það getur ekki ákveðið sig hvort það ætli að fara eða verða að eitthverju alvöru... vonum það fyrrnefnda :)

Annars er ég farin að hlakka til að koma heim í október og slappa aðeins af fyrir fyrstu prófatörnina... :)

Kv., Eva.


Helgi nr. 4!!!!!

Hæ, hæ.

Í gær á leiðinni heim úr skólanum varð ég næstum vitni að slysi. Bíll keyrði á hjólreiðamann sem var fyrir aftan mig!!! Ég segi að ég hafi næstum verið vitni að slysinu því að ég sneri auðvitað bakinu í atvikið en heyrði áreksturinn og leit strax við og sá það gerast að eitthverju leyti. Hjólið var í rétti, en bíllinn var að koma af hliðargötu og greinilega leit ekkert eftir hjóli og brunaði yfir hjólabrautina án þess að líta. Hjólreiðamaðurinn féll kylliflatur á stéttina. Hann lá fyrst hreyfingarlaus. Mér leist illa á þetta svo ég fór til baka til að athuga með hann og ætlaði að hringja í 112, en þá stóð hann sjálfur upp og fór strax að klæða sig úr jakkanum til að athuga hvort það væri blóð á handleggnum sínum. Hann hefur pottþétt fengið smá höfuðhögg miðað við hvernig hann datt.. hann var ekki með hjálm!! Ég er alltaf með hjálm og er að reyna að dreifa boðskapnum hérna meðal þeirra sem ég þekki en það gengur því miður ekki alltof vel. En sem betur fer slasaðist hann ekki neitt alvarlega og maðurinn sem keyrði bílinn kom til hans að huga að honum auk fleira fólks.

Í gær var partý fyrir alla nemendur skólans, haldið í skólanum sjálfum!!! Skólanum var breytt í partýstað og það var skrýtið að vera í skólanum eftir miðnætti með diskóljósum, teknótónlist og börum....! Ég ákvað að vera rosalega sniðug og koma með mitt eigið áfengi (alveg eina heila dollu...) og hafði það í töskunni minni. Svo sé ég að við innganginn eru verðir sem kíkja ofan í töskur. Mér leist ekkert á það og heldur ekki vinum mínum sem höfðu einnig komið með sitt eigið.. en talsvert meira en ég auðvitað. Við fengum þá þessa snilldarhugmynd að fela booze-ið úti bakvið vegg og fara inn með ,,tómar" töskur, fá armbandið (,,miðann") og fara út á öðrum stað skólans og ná í okkar drykkjarföng... og viti menn það tókst! :D

Kvöldið byrjaði á drykkjuleikjum, fyrst var ég ekkert rosalega hress með það en það var bara gaman, fórum í eitthverja fáránlega leiki þar sem maður gerði sig að fífli haha. Ok, svo ákváðum við að kíkja á dansgólfið... (mér til mikillar ánægju því eins og þið vitið eeeeeelska ég teknó!!). En ég hélt sem sagt á mínum drykk og þá koma tveir verðir, stoppa mig, og segja á dönsku að það sé stranglega bannað að vera með eigin drykki á ballinu.... og ég þóttist ekkert vita, var eins og heimskur útlendingur og sagði bara sorry?.. Þeir tóku hann af mér og ég var skíthrædd um að þeir myndu hringja í lögguna eða eitthvað... en ég ,,slapp", haha, var svo vitlaus að halda að það yrði eitthvað mál úr þessu, en það voru mjög margir sem lentu í því sama. Svo var dansað smá... ég hitti nokkra í fyrsta skipti, t.d. fólk frá Kóreu, Frakklandi og Búlgaríu og ég er ekki að grínast en allir spurðu mig hvort Íslendingar töluðu ensku sem móðurmál!!! Ég er svo barnaleg kannski en ég hélt að það væri kommon sense að íslenska er okkar móðurmál!! :)

Ég veit ekki alveg hvað ég geri um helgina... reyni að læra allavega... :)

Heyrumst.

Eva.

 


Snemmbúin heim-sóknarferð

Hæ, hæ.

Ég hef fréttir að færa.... ég fæ 2 vikna hausthlé í október (sem er reyndar líka upplestrarfrí) og ég ákvað að skella mér á flugmiða heim þann 14. okt og verð í 10 daga, eða til 24. okt.!! Flestir sem ég þekki ætla einmitt heim til sín í fríinu og ég ákvað að gera hið sama þar sem að jólafríið mitt er svo lélegt (en þá get ég bara komið heim í tæpa viku!). Ég náði að festa kaup á næst seinasta sætinu fyrir daginn sem ég kem heim, þ.e. af þeim sætum sem voru ódýrust!!

Annars er lítið annað að frétta... en ég hef eina skondna sögu að segja :D

Ég var að tala við spænska stelpu, sem er líka líffræðingur, um verkefnið sem ég gerði seinasta sumar, þ.e. svefnrannsóknina. Ég sagði henni að ég hefði verið að athuga svefn hjá hjúkrunarfræðingum, þ.e.  ,,nurses" og hún svaraði: ,,jááááá, er það ekki einhver tegund sem lifir í sjónum"? :D

Kv., Eva María.


Hmm.. venjulegir dagar í Odense?

Enn og aftur trúi ég því ekki að það séu liðnir 4 dagar síðan ég bloggaði seinast.... en það er bara ágætt svo sem að tíminn líði hratt því þá hef ég ekki tíma fyrir heimþrá... þó ég sakni ykkar allra nú þegar..!InLove (Ég er líka farin að sakna alvöru ísbúða... mig dreymir um Ísgerðina.. haha). Crying

Ég hef svo sem ekki margt að segja þar sem dagarnir hafa einkennst af skóla og mjög svo hversdaglegu lífi.... en ég held að það sé kominn tími á eitt kjánastrik að hætti Evu Maríu.... hér kemur eitt. sem gerðist fyrir mig í dag....Pinch

Á leiðinni heim úr skólanum ákvað ég að koma við í Nettó. Ég þurfti bara að kaupa smotterí og dreif mig á kassa... svo var afgreiðslukonan búin að ,,bípa" allt, þ.e. með strikamerkin og sagði upphæðina, ég rétti henni 100 kr (danskar auðvitað) og á meðan ég var að bíða eftir að fá afganginn til baka raðaði ég öllu í pokann... og leit svo upp en þá sá ég að hún lokaði peningakassanum og labbaði burt án þess að segja neitt... það fannst mér nú skrýtið þar sem að ég átti eftir að fá afganginn sem voru nú heilar 39 kr!! Þannig að ég ákvað að bíða auðvitað, en það var enginn á eftir mér á kassanum. Svo var ég örugglega búin að bíða í tæpar 10 mín og fannst þetta orðið frekar skrýtið en ekkert bólaði á afgreiðslukonunni. En á meðan var afgreiðslumaður örugglega búinn að afgreiða 6 manns á hinum kassanum á meðan. Mér leist ekkert á þetta svo ég spurði afgreiðslumanninn á hinum kassanum hvert afgreiðslukonan hefði farið... ég ætti eftir að fá afganginn til baka.... hann horfði á mig hissa og kallaði eftir henni í hátalarakerfinu... þá kom hún hlaupandi, rennandi sveitt... og ég sagði við hana (frekar pirrípú auðvitað) ,,þú átt eftir að gefa mér afganginn til baka!!!!!" Þá benti hún á afgreiðsluborðið þar sem hún hefði sett afganginn og kvittunina, en það er lítil skál ofan á þar sem afgangurinn er oft settur... en ég hafði ekkert tekið eftir því af því að ég var að raða í pokann. Svo ég skammaðist mín frekar mikið, var búin að beina athyglinni að mér með því að láta kalla hana upp og tefja 2 afgreiðslumenn.. svo ég sagði bara pent ,,sorry" tók afganginn og strunsaði út með eplarauðar kinnar og leit ekki aftur en fann hvernig allir horfðu á mig... Blush

Annars er bara allt ágætt að frétta. Vonast til að heyra í ykkur sem flestum á Skype!

 Kv.,Eva.

 


Erfið skólavika!

Ég trúi því ekki að það séu fimm dagar síðan ég bloggaði seinast... mér finnst eins og það hafi verið í gær!

Annars er allt ágætt að frétta af mér. Það var mjög mikið að gera í skólanum þessa vikuna og ég er eiginlega frekar ánægð að hún sé búin. Ekki það að færri klukkustundir í skólanum taki við í næstu viku... heldur er gott að vera komin svolítið inn í hlutina, þ.e. að vera búin að læra að þekkja inn á hitt og þetta í sambandi við skólann.

Seinasta þriðjudag var farin ferð til stöðuvatns þar sem sýni voru tekin allan daginn (fyrir fag sem kallast vatnavistfræði). Það var mjög gaman og ég var í skemmtilegum hópi, við fengum að vera í vöðlum og vera úti á árabátum o.fl. skemmtilegheit :) En sá skóladagur var frá 8 um morguninn og ég var ekki komin heim fyrr en að verða hálfníu um kvöldið! 

Ég var svo þreytt í gær þegar ég kom heim að ég sofnaði ,,óvart" um klukkan þrjú leytið og vaknaði rétt fyrir klukkan sjö um kvöldið við það að annar meðleigjandinn var að banka á hurðina hjá mér! Ég meira að segja svaf af mér svaka þrumuveður! Samt sem áður gat ég sofnað kl. eitt og átti erfitt með að vakna klukkan tíu í morgun...!

Í dag fór ég í göngutúr í ,,hina áttina" frá íbúðinni, þ.e. í þá átt sem ég hef aldrei farið þar sem að bæði búðir, miðbærinn og skólinn eru í þá átt sem ég hef alltaf farið frá húsinu. Í þeim göngutúr uppgötvaði ég mér til mikillar ánægju að það er skemmtilegur göngustígur meðfram ánni rétt hjá húsinu mínu og grasagarður þar rétt hjá :) Ég setti inn fullt af myndum á facebook!

Þetta verður annars skrýtin helgi þar sem að ég verð ein heima... sniff! Danska stelpan fór heim til foreldra sinna yfir helgina og pólska stelpan fór heim til Póllands í tæpa viku. Þannig að ég er frekar einmana hérna í kotinu.. haha.

Helgin verður nýtt til þrifa, þvotta, og vonandi lærdóms!

Góða helgi!

Eva.

PS! Setti inn nýjar myndir hér á bloggið!!


Og áfram rignir hann..

Jeij, í dag fékk ég mér sjónvarp (lítið (14") , með innbyggðum DVD spilara) á aðeins 2 þús karl íslenskar... notað auðvitað :) Þarf bara að kaupa mér kapal/loftnetssnúru og þá er sjónvarpið klárt fyrir danskar útsendingar.. sjibbí!! haha.

 Annars rigndi heil ósköp í dag svo dagurinn var vel nýttur til lærdóms, vildi bara óska þess að hugurinn hefði fylgt öllu sem var farið yfir í dag.. það kemur betur í ljós á morgun.. hehe.

Tónleikarnir í gær voru frekar lélegir... eitthvað danskt pop .... og svo var ótrúlega margt fólk að maður var á tímapunkti hræddur um að verða bara undir margmenninu.. en það var gaman að hitta krakkana.

 Það er strembin vika framundan í skólanum... langir skóladagar; verklegir tímar, vettvangsferðir og fyrirlestrar! Vona að það verði bara skemmtilegt....

Kv., Eva.


Ég hlýt að vera með spánskt blóð í æðum!!! haha.

Hæ. hæ.

Ég er mikið búin að vera að hitta alþjóðlegu stúdentana, Welcoming Reception for International Students var t.d. í gær, þá koma prinsessan og hélt smá ræðu (Marie) og rektor einnig. Samkvæmt ræðu rektors er ég ekki alþjóðlegur stúdent þar sem Norðurlandabúar voru flokkaðir í sér hóp hjá honum þegar hann taldi upp hópana sem stunda nám við skólann, sem sagt útlendingar, Norðurlandabúar og innfæddir þ.e. Danir! Kannski þess vegna sem að ég hef lent í veseni m. ýmsa pappíra o.fl... hehe.

En ég geri allt eins og alþjóðlegu stúdentarnir. Það voru allir að kynna sig f. hverjum öðrum í gær á samkomunni eftir Welcoming reception í gær, þ.e. alþjóðlegu stúdentarnir, og það var forvitnilegt að hitta krakka frá löndum víðs vegar um heim! Það var stundum skondið að tala við hina og þessa frá hinu og þessu landi. Það fyndnasta sem gerðist var þegar ég var að tala við grískan strák en eftir stutta stund spurði hann mig af hverju ég hreyfði höfuðið á ákveðinn hátt þegar ég tala... ég var bara eitt stórt spurningarmerki og fannst það frekar dónalegt þar sem ég var búin að tala við hann í mesta lagi í tvær mínútur, en sá gaur var uppáþrengjandi og boring. Svo kom einn hollenskur gaur til mín og annarra tveggja stelpna og vildi giska á hvaðan við værum og hann hélt fyrst að ég væri frá Frakklandi, svo Spáni...! Það fannst öllum mjög merkilegt að ég væri frá Íslandi, enda sá eini að mér skilst!

Ég hef einhverra hluta vegna mest verið með spænsku fólki, það er mjög almennilegt og talar ensku bara útaf mér, þ.e. þau eru öll spönsk nema ég en tala ensku þegar ég er með þeim!!! Í kvöld var mér boðið til þeirra í spænska ommilettu (eða hvernig það er stafað) sem innihélt kartöflur, það var mjög gott!! Og rauðvín með kóki úti með, haha. :)

Á morgun ætla ég í IKEA með öðrum meðleigjandanum og svo á tónleika með Spánverjunum og pólskri stelpu sem ég þekki, um kvöldið. Ég ætti reyndar að nýta tímann til að læra... en hvað um það haha.

Hjólið hefur reynst mér vel þrátt fyrir margt sem þarf að laga... og ég er að eitthverju leyti ólögleg með enga bjöllu eða óvirka handbremsu.. svo vantaði endurskin að aftan en ég sá endirskinsplötu f. framan íbúðina svo ég tók hana og festi við hjólið að aftan, maður þarf að kunna að redda sér! :)

Jæja.. ætti að vera löngu farin að sofa!!!

Góða nótt.Smile

Ps. svara emailum sem fyrst :D


Höfundur

Eva María Guðmundsdóttir
Eva María Guðmundsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband