4.9.2011 | 21:24
Og áfram rignir hann..
Jeij, í dag fékk ég mér sjónvarp (lítið (14") , með innbyggðum DVD spilara) á aðeins 2 þús karl íslenskar... notað auðvitað :) Þarf bara að kaupa mér kapal/loftnetssnúru og þá er sjónvarpið klárt fyrir danskar útsendingar.. sjibbí!! haha.
Annars rigndi heil ósköp í dag svo dagurinn var vel nýttur til lærdóms, vildi bara óska þess að hugurinn hefði fylgt öllu sem var farið yfir í dag.. það kemur betur í ljós á morgun.. hehe.
Tónleikarnir í gær voru frekar lélegir... eitthvað danskt pop .... og svo var ótrúlega margt fólk að maður var á tímapunkti hræddur um að verða bara undir margmenninu.. en það var gaman að hitta krakkana.
Það er strembin vika framundan í skólanum... langir skóladagar; verklegir tímar, vettvangsferðir og fyrirlestrar! Vona að það verði bara skemmtilegt....
Kv., Eva.
Athugasemdir
Ú danskt sjónvarp :) Þá sérðu kannski "Livvagterne". Það er verið að sýna 2. seríu heima núna og ég missi af því...!!!!
Harpa (IP-tala skráð) 5.9.2011 kl. 00:35
awww :) Verst að ég ..missi" líka af því hehe ;)
Eva María Guðmundsdóttir, 5.9.2011 kl. 17:34
Tvöþúsundkall? Það er ekki neitt.. næs! :D
Sigrún (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 20:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.