20.10.2010 | 11:20
Seinustu dagar.
Hæhó.
Ég hef lítið verið í tölvunni minni, því greyið er örugglega aaaalveg að fara að gefast upp.
Það var svo kalt um daginn að ég þurfti að hafa hitann á í loftkælingunni inni í íbúðinni!! Veðrið er samt mun betra núna, og í dag voru 22°C og á morgun á að vera 25°C! Í dag fór ég í túrista-strætó sem er ókeypis og fer ákveðinn hring í borginni. Ég geri mér aðeins betur grein fyrir því núna hvernig aðalbærinn er og hvar ég er staðsett í honum...! Það var samt frekar skrýtið að vera ein að fara í eitthvað svona túristadæmi, en það var bara fínt.
Ég og Kristbjörg fórum í gær í bíó á teiknimynd í 3D. Hún var um uglur og heitir ,,Legend of the Guardians- The Owls of Ga´Hoole". Hún er ótrúlega vel gerð og ég mæli með henni. Það á að sýna hana bráðlega á Íslandi, getið lesið um hana hérna: http://midi.is/bio/11/523/ Bíóið var ótrúlega flottog fancy - salurinn með lazy-boy og sýningartjaldi fyrir framan bíótjaldið og svo var dregið frá því í upphafi sýningarinnar. Svo fengum við über flott 3D gleraugu. :) Við fórum fyrir hádegi í bíó og það var frekar skrýtið að koma úr bíó-inu út í hádegis-sólina! hehe.
Jæja, læt gott heita í bili.
Bið að heilsa til Íslands. :)
Kv., E-Maíja.
Athugasemdir
Sniðugt að fara í skoðunarferð þegar það er ekki allt of heitt ;)
Skrýtið að koma úr bíó í sól og birtu, hehe. Ég hefði örugglega aldrei náð hádegissýningunni, tíhí!
Harpa (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 18:28
nei harpa væri enn sofandi þegar við kæmum heim úr bíóinu... haha ég tékka örugglega á legend of the guradians;D
jóhanna (IP-tala skráð) 20.10.2010 kl. 23:39
Bíó fyrir hádegi, það er örugglega skrítið!
Elvar Jón Guðmundsson (IP-tala skráð) 21.10.2010 kl. 15:59
Ohh næs, yfir 20° hiti! :) En já, segi eins og hin.. örugglega mjög skrýtið að fara fyrir hádegi í bíó!
Sigrún (IP-tala skráð) 21.10.2010 kl. 22:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.