30.11.2010 | 00:09
Völundarhús og Disney sýning
Hæ, hæ.
Bara nokkrar línur.
Nú eru tvær vikur í að við leggjum af stað heim! Það er svolítið skrýtið að á morgun sé kominn 1. desember....! Maður er samt farinn að hlakka til að koma heim í jólastemninguna!
Við nýttum seinasta daginn sem við höfðum bílinn í að keyra rétt út fyrir Melbourne city og heimsóttum fallegan garð sem var völundarhús. Það rigndi samt allan þann dag, en við létum það ekkert á okkur fá og vorum bara í regn-ponsjó-um!
Það er búið að vera kalt hérna í Melbourne en nú á að hitna aftur og um 25-30°C út vikuna! Ekkert skrýtið að maður eigi erfitt með að komast í jólaskap! haha.
Ég, Kristbjörg og Freyja fórum á Disney-sýningu á safni um daginn. Það var gaman að skoða allar Disney skissurnar og svona... en auðvitað mátti ekki taka neinar myndir!
Ég og Elli fórum í gær á mynd í Imax sem heitir ,,Under the sea" í 3D, og auðvitað vorum við aftur það heppin að lenda í því að vera með tveimur skólahópum á sýningunni!
Á morgun erum við að fara á U2 tónleika! Það verður eitthvað ,,big" eins og Ástralirnir myndu orða það....hoho.
Þangað til seinna.
Eva.
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Merz og Macron hvetja til samninga við Bandaríkin
- Trump stöðvar flæði ólöglegra innflytjenda
- Segir auðgunarskilvindur Fordó ónýtar
- Sakfelldur fyrir að myrða dreng með samúræjasverði
- Eftirlýstur eiturlyfjabarón gómaður
- Ætla hunsa úrskurði dómstólsins
- Hernaðarbrölt veldur Finnum hugarangri
- Segir Írana ekki hafa náð að koma neinu undan
- Khamenei: Bandaríkin græddu ekkert á árásunum
- Skyttur á þremur bifreiðum
Fólk
- Orlando Bloom kyssir Kim Kardashian
- Sem betur fer er alveg ágætt að vinna með mér
- Vilja ekki að Kanye West komi fram
- Kim Kardashian í nýrri kvikmynd um Bratz dúkkurnar
- Íslenskt sjónvarpsefni verðlaunað á ný í október
- SKAM stjörnurnar koma saman á ný
- Snorri og Agnes hljóta norræna viðurkenningu
- Túlkunin til fyrirmyndar
- PETA-samtökin gagnrýna Vilhjálm prins og Katrínu prinsessu
- Fær aðgang að skilaboðum milli Lively og Swift
Viðskipti
- Atlas Primer leiðandi afl í gervigreind fyrir fræðslu
- Bjartsýni um framtíð Icelandair
- Tap Reykjavíkurborgar fór 985 milljónir fram úr áætlun
- Bjarni nýr rekstrarstjóri Avia
- Milljarður í ráðningar og ráðgjöf
- Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
- Shell útilokar yfirtöku á BP næstu sex mánuði
- Ár umbreytinga hjá 66°Norður
- Lítil raunávöxtun hjá Landsvirkjun
- Lánveitendur Alvotech lækka vexti á langtímaskuldum félagsins
Athugasemdir
Úúú, góða skemmtun á tónleikunum :) gladdist eitt augnablik þegar þú minntist á 1. des og fór að hugsa um súkkulaðidagatalið mitt... mundi svo að þú ert í framtíðinni...haha!
Harpa (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 02:45
Danke schön.
Aww haha.
Svo kem ég heim í fortíðina.. ohoh
Eva María Guðmundsdóttir, 1.12.2010 kl. 02:07
Hvað kallar þú kalt mín kæra? Hér eru -8°C as we speak..
Sigrún (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 21:44
hahahaha :D En það eru smá viðbrigði að rokka milli 30° og 20°C ;)
Eva María Guðmundsdóttir, 8.12.2010 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.