21.11.2010 | 11:04
Jamm og já.
Tíminn líður alveg rosalega hratt, það er bara ótrúlegt.
Mér finnst tíminn líða hratt hérna, en mér finnst ég hafa verið óralengi í burtu frá föðurlandinu...
Ég sagðist ætla að setja inn myndir, en ég setti í staðinn inn nokkrar myndir á Facebook, það eru hvort eð er allir með Facebook... :)
Við fjögur erum búin að vera mikið saman núna, en Elli er loksins alveg búinn í skólanum og Kristbjörg er alveg að vera búin með sín verkefni.
Í dag fórum við niður í bæ og skoðuðum líka grasagarðinn hérna betur. Hann er það stór að það er bara vonlaust að skoða hann á einum degi og ég gæti trúað því að það sé enginn Melbourne-búi búinn að skoða hann til hlítar.
Ég og Elli fórum í bíó um daginn, í Imax, að sjá mynd um pöddur í 3D. Það var frekar kúl. En það sem var ekki kúl var að akkúrat þurftu tveir stórir hópar af skólakrökkum að vera á sömu sýningu og við... og maður var alltaf að sjá litlar hendur reyna að grípa pöddurnar (útaf 3D effectum)... æ, það var líka bara krúttlegt kannski!
Við ætlum líklegast að fara í ferðalag í þessari viku, leigja bíl og keyra um. Það verður örugglega gaman. Spáin fyrir vikuna er hrikaleg að mínu mati, næstum 30°C út vikuna... eins gott að bíllinn verði með loftkælingu!
Jæja, ætlaði bara að skrifa smotterí í bili.
Kv., Eva.
P.s. Er búin að vera mikið að hlusta á snilldarlag eftir Val bróður, FaMR lög með Elvari og co. og trommuspil í beinni í boði Ella hérna í Melbourne... rosalega hæfileikaríkir bræður maður!
Myndaalbúm
Af mbl.is
Fólk
- Orlando Bloom kyssir Kim Kardashian
- Sem betur fer er alveg ágætt að vinna með mér
- Vilja ekki að Kanye West komi fram
- Kim Kardashian í nýrri kvikmynd um Bratz dúkkurnar
- Íslenskt sjónvarpsefni verðlaunað á ný í október
- SKAM stjörnurnar koma saman á ný
- Snorri og Agnes hljóta norræna viðurkenningu
- Túlkunin til fyrirmyndar
- PETA-samtökin gagnrýna Vilhjálm prins og Katrínu prinsessu
- Fær aðgang að skilaboðum milli Lively og Swift
Viðskipti
- Atlas Primer leiðandi afl í gervigreind fyrir fræðslu
- Bjartsýni um framtíð Icelandair
- Tap Reykjavíkurborgar fór 985 milljónir fram úr áætlun
- Bjarni nýr rekstrarstjóri Avia
- Milljarður í ráðningar og ráðgjöf
- Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
- Shell útilokar yfirtöku á BP næstu sex mánuði
- Ár umbreytinga hjá 66°Norður
- Lítil raunávöxtun hjá Landsvirkjun
- Lánveitendur Alvotech lækka vexti á langtímaskuldum félagsins
Athugasemdir
við tætum sko upp malbikið í næstu viku :)
Kristbjörg (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 11:31
það verður að gefessu að éta!
Valur (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 12:23
Borða!!!
Elvar Jón Guðmundsson (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 17:44
Ef það er ekki loftkæling þá tekurðu bara Ponsa eða Perlu á þetta....hausinn út um gluggann :) Mátt alveg senda nokkrar aukagráður hingað hehe.
Harpa (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.